Privacy policy
Trúnaður
Við pöntun fyllir kaupandi út upplýsingar um nafn, tölvupóst og heimilisfang. Við pöntun samþykkir kaupandinn að þessar upplýsingar fari í viðskiptavinagagnagrunn okkar. Þessar upplýsingar eru trúnaðarmál og þær verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila. Lögð er áhersla á öryggi persónuupplýsinga viðskiptavina okkar og förum með slíkar upplýsingar í samræmi við lög og reglur um persónuvernd og úrvinnslu persónuupplýsinga. Við söfnum eingöngu upplýsingum um viðskiptavini okkar til þess að geta veitt þá þjónustu sem beðið er um.