Refund policy

Að skipta eða skila vöru

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd með millifærslu fyrir vörunni en flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

 

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingarkostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum vöruna ef þess er krafist. 

Vinsamlegast hafið samband við barnidsjalft@gmail.com með spurningar.