Waldfrau Windelfreiunikate
EC ullarbleyja - stök
EC ullarbleyja - stök
Couldn't load pickup availability
EC bleyja úr hreinni merino ull gerir koppaferðir einfaldar og fljótlegar.
Bleyjan er opnuð að framan en helst á barninu að aftan vegna mittisbandsins sem bleyjan er föst við. Þannig er hægt að bjóða barninu á koppinn án þess að þurfa leggja barnið niður og klæða það í og úr öllu.
Bleyjan virkar eins og ullarskel og er notuð með innleggjum sem fást hér. Þannig þarf einungis að skipta um innleggin þegar þau verða óhrein og hægt er að nota bleyjuna (skelina) aftur og aftur. Það er gott að eiga 2-3 bleyjur til að skipta á milli meðan önnur er viðruð eða þvegin.
EC bleyjurnar passa við bleyjulausu buxurnar sem fást hér. Saman lítur það nánast út eins og venjulegar buxur og eru hið fullkomna "back-up" fyrir bleyjulaust uppeldi.
Kosturinn við ull eru hún er 100% náttúruleg, umhverfisvæn, and-bakteríumyndandi og þarf sjaldnar þvott.
Efni
100% merino ull
Umhirða
Bleyjurnar eru mjög auðveldar í umhirðu. Ullin hreinsar sig nánast sjálf þegar maður viðrar hana (sérstaklega úti í ferska loftinu) og fjarlægir alla lykt. Það þarf því einungis að þvo bleyjurnar ef þær verða virkilega óhreinar eða eru ekki lengur vatnsheldar. Til að gera bleyjuna aftur vatnshelda þarf að leggja hana í lanolinbað. Þegar bleyjan er þvegin skal notast við handþvottar/ullar prógramm og ullarsápu.
Stærðir
Stærð 1: sirka 3-6 kg (hentar frá fæðingu). Ummál maga ca. 28-40 cm.
Stærð 2: sirka 6-10 kg. Ummál maga ca. 32-44cm.
Stærð 3: sirka 10-15 kg. Ummál maga ca. 37-48 cm.
Ath. Takmarkað magn til.
Share
